Hæhæ!
Mig langaði bara til þess að sýna lit og blogga, þó ég hafi ekki neitt mjög mikið að segja eins og venjulega. Skólinn er byrjaður aftur og það eru
bara
fjórar vikur eftir. Þessi og þrjár í viðbót og svo próf. Held ég. Ég get ekki beðið eftir sumrinu, ég og Hanna og Ívar og kæróin saman í útlöndum, það verður eitthvað spes.
Um páskana fór ég með Sigga og fjölskyldu á Hvolsvöll og við gistum í íbúðinni hans Unnþórs, og fórum útum allt þarna að skoða og hitta fólk. Það fyndnasta var líklega þegar ég, Elvar og Siggi reyndum að fara á djammið á Hvolsvelli. Við löbbuðum niður að Hótelinu (þar sem stóð
BAR
á skiltinu) en þegar við komum þangað var allt lokað og læst. Svo við gengum að pizza staðnum (þar sem stóð líka
BAR
á skiltinu) og þar var alveg jafn læst. Eina lífið þarna var köttur sem elti okkur. Nema hvað, þegar við vorum á leiðinni heim sáum við fólk! Það voru krakkar á rúntinum. Tveir bílar held ég. Allt í lagi með það, nema hvað, ég held að þessir krakkar hafi aldrei séð ókunnugt fólk áður. Keyrðu framhjá okkur með háu ljósin á og tóku framúr hvorum öðrum. Rosalega töff. Svo öskruðu þeir eitthvað á Hvollvelsku á okkur, ég skildi það ekki. Þeir hafa örugglega fattað það og ákveðið að þýða fyrir okkur, því þegar við vorum að labba inn hjá Unnþóri heyrðum við öskrað ;
"PERRAR" !
En nóg um það.
Í kvöld er söngvakeppnin. Mér finnst það eiginlega skemmtilegasta kvöldið af þessum sem eru í boði í skólanum, finnst svo gaman að horfa á þá sem þora að fara upp á svið og syngja fyrir framan allan skólann! Ég gæti það
aldrei.
Ég reyndi einu sinni að taka þátt í söngvakeppni með Lenu í grunnskóla, en hætti við kvöldið áður en keppnin var og skildi Lenu eina eftir að syngja
dúett!
Shit
. Ég vaknaði við það að það flaug fugl á gluggan hjá mér, og eins og þeir sem þekkja mig vita er ég mjög hrædd við fugla og ég gat ekki sofnað aftur. En ég er eiginlega viss um að þetta hafi verið drauga-fugl því klessan var á glugganum en það lá
enginn
fugl á jörðinni! Ég vona bara að kötturinn sem er alltaf að þvælast í garðinum hafi étið hann. Ég
þoli
ekki fugla. Ég er líka viss um að fuglarnir velja sér alltaf glugga sem ég er fyrir innan til þess að fljúga á! Það er ekki eðlilegt hvað þetta gerist oft hjá mér! Arg!
En nú er þetta komið ágætt.
Má ég fá comment?
Kv. Sunna